Hlutfall sýktrar síldar minna en áður
Kap VE, skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum kom í gær með fyrsta síldarfarm ársins til Eyja en skipið er með um 600 tonn sem verður landað í Vinnslustöðinni. Þar hefur síldin verið flokkuð, sýkta síldin tekin frá og ósýkt fryst til manneldis. Því verður haldið áfram. Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir í samtali á vefnum sudurlandid.is að fyrstu prufur gefi til kynna að hlutfall sýktrar síldar sé minna nú en áður.
Lesa meira
Beitukóngurinn dafnar vel í BreiðafirðiBeitukóngurinn á Breiðafirði nýtur þess að síld hefur verið að drepast þar í stórum stíl. Sjávarrannsóknarsetrið Vör í Ólafsvík annast rannsóknir á beitukóngi á Breiðafirði en veiðar á honum eru hvergi annars staðar stundaðar hér við land.
Lesa meira
|
The Economist: Framseljanlegar aflaheimildir lausnin fyrir ESB
Framseljanlegar aflaheimildir eru lausnin á vanda sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Fiskveiðistjórnun á Íslandi er til eftirbreytni á sama tíma og sjávarútvegsstefna ESB með öllum sínum ríkisstyrkjum hefur beðið algert skipbrot. Sú stefna er "ein meginástæða þess að Noregur og Ísland, sem bæði láta sér annt um hafið, hafa hvorugt gengið í Evrópusambandið." Þetta er megininntak ítarlegrar umfjöllunar í tímaritinu The Economist nú um áramótin.
Lesa meira
|
|
| |
Bylting í bergmálsmælingum í loðnuleit
Loðnuleit stendur nú yfir. Auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar taka tvö skip HB Granda, Faxi RE og Lundey NS, þátt í leitinni svo og Síldarvinnsluskipið Börkur NK. Loðnuleitin nú markar ákveðin tímamót því að þessu sinni gefst sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar kostur á að fylgjast jafnóðum með upplýsingum um það sem fiskleitartæki allra fjögurra skipanna nema á meðan leitinni stendur.
Lesa meira
|
Aflaverðmæti skipa Þorbjarnar hf. 4,4 milljarða króna
Á árinu 2008 lönduðu skip Þorbjarnar hf. í Grindavík samtals 24.490 tonnum að verðmæti 4.390 milljónir kr. Afli frystitogara var 15.899 tonn. Gnúpur GK fiskaði fyrir hæstu fjárhæðina, 1.143 milljónir króna. Afli línubáta var 8.591 tonn.
Lesa meira
|
Ný Cleopatra 35 til Varangursfjarðar í Noregi
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Nesseby í Varangursfirði í Finnmerkurfylki í Noregi. Kaupandinn er Edgar Olsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Vesterelvjenta. Hann mælist 13.5 brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 35 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.
Lesa meira
|
Skip Ísfélagsins fiskuðu fyrir röska 5 milljarða króna
Floti Ísfélags Vestmannaeyja veiddi tæplega 132.000 tonn miðað við fisk úr sjó árið 2008. Langmesti hlutinn var uppsjávarfiskur, en um 6.700 tonn veiddust af bolfiski. Aflaverðmæti skipanna var um 5,1 milljarður íslenskra króna.
Lesa meira
|
Loðnuleit hefst um helginaRannsóknaskipið Árni Friðriksson og loðnuskipin Börkur NK, Faxi RE og Lundey NS, halda til loðnuleitar núna um helgina. Veiðiskipin eru með tækjabúnað sem gerir þeim kleift að mæla loðnu með sambærilegum hætti og rannsóknaskipið og senda gögnin milli skipa.
Lesa meira
|
Árið 2008 var án dauðaslysa á sjó
Nýliðið ár var einstakt að því leyti að enginn lét lífið í sjóslysi á íslenskum skipum. Vegna náinna tengsla við hafið og mikilvægis sjósókna frá upphafi, er þetta einstakt og jafnvel hægt að leiða að því líkur að 2008 hafi verið fyrsta árið frá landnámi án banaslysa á sjó, að því er segir í frétt á heimasíðu Siglingastofnunar Íslands.
Lesa meira
|






